Námsmenn erlendis eiga nú ekki sjö dagana sæla.. og því miður þá er ég einn af þeim.. Þetta er kannski ekki besti tíminn til þess að vera stödd í London í námi.
Skólinn gengur alveg svakalega vel... Það er svo gaman að læra eitthvað sem maður hefur áhuga á... Líka svo svakalega gaman að ganga vel!
Í síðustu viku þá fórum við í hár. Lærðum að gera nokkrar greiðslur og hárkollur og svoleiðis. Ekkert smá gaman.. ég væri ekkert að móti því að læra meira um hár. Og í þessari vikur erum við að gera tímabils hár. Við erum semsagt að setja hárgreiðslur á hárkollur. Þetta er ekkert smá skemmtilegt og áhugavert. Samkvæmt kennaranum okkar eigum við núna að geta gert hvaða greiðslur sem er.
Uppáhalds dagurinn minn er alltaf föstudagur. Því að þá förum við alltaf í verklegt próf. Ég held að ég sé reyndar eina af fáum sem elska þessi próf, örugglega þar sem mér gengur vanalega þokkalega vel í þeim... En síðan förum við líka alltaf á pöbbinn á föstudögum eftir skóla og tölum um make-up og hár... gæti ekki verið betra að mínu mati.
Mér finnst reyndar alveg svakalega skrítið að vera í skóla með svona mörgu fólki sem fílar nákvæmlega sama hluti og ég.
Ég er hinsvegar búin að lenda í svakalegu veseni með bankann hérna úti. Ein helgin í enda september þá vorum við Jón Mar á leiðinni í bæinn en þegar ég var að reyna að kaupa mér miða í bæinn en ég fékk aldrei heimild á UK kortið mitt. Ég skildi ekkert í þessu þannig að ég ákvað að hringja í bankann. Gaurinn í símanum var gat ekkert hjálpað mér. Hann byrjaði á því að segja mér að það væri ekkert að kortinu mínu, sem var rugl. Svo sagði hann að það eina sem ég gæti gert var að loka á kortið mitt ( að fá nýtt kort tekur alveg heila eilífð hérna úti), því að þá get ég fengið eitthvað sem heitir "Emergency funding" úr hraðbanka. Nema hvað að það væri ekki 100% víst að þetta myndi virka. Þannig að ég sagði gaurnum " Takk fyrir ekki neitt, nei takk!". Ég fór svo í bankann þriðjudeginum eftir og segi við konuna þar að kortið mitt sé ekki að virka, þótt að alltaf þegar ég færi í hraðbankann þá stæði að ég ætti nóg af peningum nema að ég mætti ekki taka neitt út. Hún segir við mig að það væri allt í lagi með kortið mitt. HALLO... JÚ VÍST!! Hún spyr mig síðan að prófa aftur kortið. já ok, ég gerði það og allt í einu virkar kortið mitt. Ég fer aftur til þjónustustúlkunnar og segi henni að allt sé í lagi með kortið mitt, nema að ég vildi vita afhverju þetta væri að gerast þar sem ég nennti ekki að lenda í svona veseni aftur. Hún segir mér þá að ég væri með greiðsluþjónustu á reikninginum mínum sem fær út alltaf þann 27 sept. nema að ég hefði ekki verið með nógu mikla innistæðu til þess að borga hana, þannig að þau loka bara á kortið mitt. Þar sem búið var að millifæra nóg af pening þá gaf hún í skyn að þetta væri allt komið í lag.
Þann 11 okt vorum við Jón mar vorum að horfa á einhverja mynd í tölvunni þegar Seema (konan sem á íbúðina) hringir og segir mér að ekki væri búið að borga leiguna. Ég segi náttúrulega við hana að ég væri pott þétt búin að borga hana þar sem ég hafi farið í bankann um daginn og bóg peningur hafi verið á reikninginum mínum. Þannig að ég segi henni að myndi bara fara í bankann og tjekka á þessu.
Ég fór í bankann og tala við eina þjónustustúlkuna. Svona var samtalið okkar:
Rúna: Hæ, ég þarf að tjekka hvort að ég sé búin að borga leiguna mína. Greiðsluþjónustan átti að fara út af reikningum mínum þann 27 sept. Hinsvegar var ekki nógu mikið inn á kortinu þá, enn svo kom peningur inn nokkrum dögum seinna.
Þjónustustúlkan: já... Nei það er ekki búið að borga hana þar sem þú áttir ekki nógu mikinn pening þegar þetta átti að fara út.
Rúna: Já ég veit það. en ertu að segja mér að þið takið þá bara ekki peninginn út af kortinu mínu?
Þjónustustúlkan: nei.. því að þú áttir ekki nógu mikinn pening.
Rúna: ÉG veit það! en hvenær takið þið þá peninginn af kortinu mínu?
Þjónustustúlkan: hann átti að fara út af kortinu þínu þann 27 sept. en þú áttir ekki pening.
Rúna: Ég veit það!!! en hvað þarf ég þá að gera? þarf ég að koma hingað og biðja ykkur um að taka peninginn af kortinu mínu þegar ég á pening?
Þjónustustúlkan: Já, því þar sem þú áttir ekki pening þá þarftu að koma til okkar og byðja okkur að millifæra þetta fyrir þig. En þú áttir ekki pening þann 27 sept.
Rúna: ÉG VEIT!!!!!!
Illa steikt gella!!!
Stuttu seinna komst ég svo að því að bankarnir hérna geta ekki millifært á milli banka. Þú þarft að taka út pening í bankanum þínum og fara svo í bankann þar sem reikningurinn sem þú þarf að leggja inn á er og leggja hann inn þar.
Ein pirruð ....
Rúna Sif
Ætti að vera svona skilti fyrir framan alla banka Bretlands