Rúna Sif í UK

... alltaf nóg að gera...

27.05.2008 18:40:44 / Rownie

Helvítis "Proof of address"....


Mikið er búið að gerast hjá mér síðustu daga.. Ég er komin með vinnu... þurftum ekki einu sinni að leita lengi....  Þetta er ekkert spennandi vinna en er samt það sem ég var að leita mér af. Ég vinn núna á barnum og veitingarstaðnum The Pump house. Þetta er alveg þvílíkt fínn staður, og vinnan er fín líka.. fyrir utan það að ég þarf að standa allan daginn og ég er að drepast í fótunum.

Ég reyndi að opna bankabók hérna, en gat það ekki því að ég er ekki með "proof of address" ( bréf sem sannar það að ég bý þar sem ég bý) en það er erfiðara en maður heldur. Ég fór t.d í Orange til þess að fá mér síma og reikning, en nei.. gat það ekki því að ég er ekki með proof of address. Konan í símabúðinni sagði mér að fara í banka og fá mér reikning of fá þau til þess að senda mér reikning heim. Þannig að ég fór í bankann, en til þess að opna reikning þá þarf ég proof of address. Þannig Fuck them. Bankinn sagði mér svo að ég þyrfti að fá mér vinnu til þess að fá sent til mín launaseðil. Þannig að ég fékk mér vinnu, en þá var mér sagt að ég gæti ekki fengið útborgað án þess að vera með breska kennitölu. og ég bara ..ok... reddum því. Þannig að ég hringdi í dag til þess að fá að panta tíma til þess að fá viðtal fyrir kennitölu. Og þá var mér sagt, að ég þyrfti að hafa proof of address....FUCK!!!.. meira ruglið....

Annars er ekkert svakalegt að gerast... Nema að ég er að fara í viðtal vegna kennitölu á fimmtudaginn, og svo er Mellow Goldmine (hljómsveitin hennar Rhiannon) eru svo að spila á laugard. get ekki beðið... er ekki búin að sjá þau spila síðan að ég var hérna síðast! Ætti að vera fjör!

Hinsvegar er ég að fara að setja inn nokkrar myndir inn á síðuna. Aðalega frá tveimur kvöldum, Þegar ég fór í hattapartý hjá einhverju svakalega nördalegu fólki... og svo þegar við fórum öll út að skemmta okkur því að Pete var að halda upp á það að hann væri að flytja aftur heim til sín... veit ekki einu sinni hvar það er!

see you later ;)

Rúna Sif
Herdís skrifaði
hahah hattapartý
Rúna Sif skrifaði
Haha... herdísi hefur aldrei verið boðið í hattapartý"!! Sakna þín sætasta!
Erla skrifaði
Hæ sæta ást!:* Gott að heyra frá þér en leiðinlegt að allt skuli vera svona flókið og erfitt!! jii.. þín v ar sko sárt saknað í júróvisión partýinu hjá Ingu og Kalla :( een það var samt mega brjálað stuð hjá okkur! Hvernig er´nýja vinnan þín Ertu ekki bara að vinna ´´a kvöldin eða????? loov:*
Helena skrifaði
Þú misstir af titringnun í dag...sjett!
Helena skrifaði
öööh..og ójá hvar eru þessar myndir, mig langar til að sjá myndir af nördalegu fólki með hatta:D
Rúna Sif skrifaði
Var jarðskjalfti?? Ég er að reyna að finna tímann til þess að setja myndirnar inn.. er bara að vinna svo mikið þessa dagana... :S
Thelma skrifaði
Litla mús haha :)

Ætla bara að láta vita að ég skoða þetta BULL þitt um proof of address hehe ;)
Erla Gerður skrifaði
Heyrðu sæta..farðu nú að blogga meira!:) Hvernig er þarna hjá þér í UK ? Hvernig er vinnan? Er ekki rosalega gaman hjá þér sætasta ?? Jú það hlítur að vera hehe ég er bara alltaf í vinnunni og svo reyni ég að skreppa í ræktina (þegar ég nenni!) annars er EKKERT að frétta héðan. Kemur svona einn og einn sólardagur annars er bara hvasst og skýjað og eitthvað ..sumarið byrjar allavega ekki aalveg nógu vel finnst mér langar svoo í sól og sumar ójá !!:D Er núna í vinnunni að láta mér leiðast svo lítið að gera akkúrat núna úff púff ..jæja elska þig sæta músin mín:*
Elísa skrifaði
Hahahaahah!!! Proof of Address! Hvaða kjaftæði er það! Sakn jú beibí!
Helena skrifaði
Ég heimta nýtt BLOGG!!
Karen Daða skrifaði
Hæ Rúna!
Rúna sif skrifaði
Hæ Karen!!!!

helena: nýtt blogg á leiðinni :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 35931
Klukkan
Myspace
Dagsetning
20. mars 2010